Körfubolti

Spurs lék lið Oklahoma grátt | Myndbönd

Duncan fagnar í nótt.
Duncan fagnar í nótt. vísir/getty
San Antonio Spurs er komið í lykilstöðu í úrslitaeinvígi Vesturdeildarinnar eftir stórsigur, 117-89, gegn Oklahoma í nótt.

Spurs leiðir nú einvígi liðanna, 3-2, og kemst í úrslit með sigri í næsta leik sem fer fram í Oklahoma. Þar hefur Spurs aftur á móti ekki unnið lengi.

Gamli jálkurinn Tim Duncan fór á kostum í liði Spurs en hann skoraði 22 stig og tók 12 fráköst á þeim 30 mínútum sem hann spilaði. Manu Ginobili skoraði 19 stig.

Spurs hefur haft ótrúlega yfirburði gegn Oklahoma á heimavelli sínum og hefur unnið leiki sína þar með 27 stigum að meðaltali.

Kevin Durant skoraði 25 stig fyrir Oklahoma og Russell Westbrook skoraði 21.

"Við trúum því að við getum klárað dæmið í Oklahoma. Það er mjög erfiður staður til að spila en ef við spilum okkar leik eigum við að klára þetta," sagði Duncan eftir leik.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×