Þrumufleygur Illuga dugði ekki til gegn Fylki | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. júlí 2014 13:00
Tíunda umferðin í Pepsi-deild karla í knattspyrnu klárast í kvöld með fjórum leikjum, en viðureign Fjölnis og Fylkis verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 20.00. Í beinu framhaldi af leiknum verða Pepsi-mörkin á dagskrá en þau hefjast klukkan 22.00. Þar gera HörðurMagnússon og sérfræðingar hans upp alla leiki umferðarinnar. Fjölnir og Fylkir hafa ekki mæst oft í deildakeppninni; aðeins fjórum sinnum. Það var tímabilin 2008 og 2009, þegar Fjölnir lék síðast í efstu deild. Þeir komu upp sem nýliðar 2008 og áttu frábært sumar en féllu svo ári síðar. Sumarið 2009 mættust liðin í Grafarvogi og þar unnu Árbæingar sigur, 3-1. IngimundurNíels Óskarsson fór á kostum og skoraði tvö mörk og gaf eina stoðsendingu. Hann spilar með FH í dag.Þórður Ingason, markvörður Fjölnis, vill eflaust gleyma þessum leik sem fyrst en það var farið ansi illa með hann í fyrstu tveimur mörkunum og svo lét hann aukaspyrnu Ingimundar Níels sleppa undir sig á 54. mínútu.Illugi Þór Gunnarsson minnkaði muninn í 2-1 fyrir Fjöni á 45. mínútu með glæsilegu marki sem FjalarÞorgeirsson, þáverandi markförður Fylkis, réði ekkert við. Það dugði þó ekki til í þessum leik.Ásmundur Arnarsson, núverandi þjálfari Fylkis, þjálfaði Fjölni á þessum tíma og aðstoðarmaður hans var Ágúst Þór Gylfason, sá er þjálfar Fjölni í dag. Ólafur Þórðarson var við stjórnvölinn hjá Fylki og stýrði liðinu í þriðja sæti deildarinnar og í Evrópukeppni. Svipmyndir frá leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan.
Pepsi Max-deild karla Video kassi sport íþróttir Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Sjá meira