Yfir þúsund látnir í átökunum á Gasa 26. júlí 2014 16:02 vísir/ap
Heilbrigðisyfirvöld í Palestínu fullyrða nú að fleiri en eitt þúsund manns hafi fallið í loftárásum og öðrum aðgerðum Ísraelsher sem hófust þann áttunda júlí síðastliðinn. Hátt í hundrað lík hafa fundist í húsarústum á Gasasvæðinu í dag eftir að tólf klukkustunda vopnahlé Hamas og Ísrael tók gildi klukkan fimm í morgun. Þúsundir Palestínumanna hafa nú fengið tækifæri til að skoða sig um, rústir einar blasa við mörgum. Fréttaveita AP greinir frá því að óbreyttir borgara aðstoði björgunarmenn við að grafa upp lík. Vopnahléið verður notað til að koma nauðsynjum á svæðið en einnig til að tryggja innviði Gasaborgar en vatns- og rafmagnslaust hefur verið á stórum svæðum undanfarna daga. Utanríkisráðherrar sjö þjóðríkja, þar á meðal Bandaríkjanna, Bretlands og Þýskalands, funda nú í París um framhaldið. Þeir hafa óskað eftir því að vopnahléið verði framlengt. Talið er að um sex þúsund manns hafi særst í loftárásum Ísraelshers. Sameinuðu Þjóðirnar áætla að um hundrað og sextíu þúsund manns hafi leitað skjóls í byggingum samtakanna síðustu daga.
Gasa Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Sjá meira