Ertu með "hausverk“? sigga dögg kynfræðingur skrifar 22. júlí 2014 14:00 Excel skráning yfir kynlífsleysi getur aukið á pirring Mynd/Getty
Þetta kann að hljóma ótrúlega (en þó eflaust eitthvað sem hefur hvarflað að mörgum) en einn eiginmaður skrásetti í excel hversu oft konan hans neitaði honum um kynlíf. Ekki nóg með að skrásetja fjölda skipta yfir sex vikna tímabil heldur skráði hann einnig hjá sér ástæðurnar sem hún gaf fyrir því að vilja ekki stunda kynlíf. Ástæðurnar voru allskonar. Til dæmis: Ekki núna ég er að horfa á þáttinn minn, nei ég nenni því ekki, ég er þreytt, ég þarf að fara í sturtu, ég er of full. Sumsé, allskonar ástæður fyrir því að mann langi ekki í kymlíf, mjög gott og gilt.Ætli flestir hafi ekki sagt eitthvert af þessu við bólfélagann sinn á einhverjum tímapunktiMynd/SkjáskotHann svo tók sig til og sendi konunni sinni þessa samantekt í tölvupósti rétt áður en hann fór í tíu daga vinnuferð. Hún varð frekar brjáluð, skiljanlega kannski og deildi þessu með alnetinu. Viðbrögð margra eru virkilega áhugaverð lesning. Það gæti verið áhugavert að sjá þetta svona svart á hvítu en þetta er töluvert flóknara mál en að henda svona inn og afhenda svo makanum án samræðna né útskýringa. Þetta getur því seint talist góð leið til að leysa sambandsvandræði sín.
Heilsa Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið