Íslenski boltinn

Sigur á Færeyingum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Þorlákur Árnason stýrir U-17 ára liði Íslands.
Þorlákur Árnason stýrir U-17 ára liði Íslands.
Ísland bar sigurorð af Færeyjum með tveimur mörkum gegn engu í leik um 7. sætið á Norðurlandamóti U-17 ára landsliða karla í Danmörku.

Erlingur Agnarsson og Máni Austmann Hilmarsson skoruðu mörk Íslands í leiknum.

Finnland tryggði sér 5. sætið með 4-3 sigri á Bandaríkjunum og Danir unnu Englendinga með einu marki gegn engu í leiknum um 3. sætið.

Seinna í dag mætast svo Noregur og Svíþjóð í úrslitaleik mótsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×