Í tilefni leiksins í kvöld rifjaði Vísir upp fyrri viðureignir liðanna.
Ísland og Tyrkland áttust fyrst við í A-landsleik 24. september 1980, í undankeppni HM 1982. Leikið var á İzmir Atatürk Stadyumu í İzmir, þriðju fjölmennustu borg Tyrklands, og höfðu Íslendingar betur með þremur mörkum gegn einu. Þetta var fyrsti útisigur Íslands í undankeppni HM og jafnframt stærsti útisigur landsliðsins á þeim tíma.
Íslenska liðið tók forystuna í hitanum í İzmir með marki Janusar Guðlaugssonar á 12. mínútu. Ísland tvöfaldaði forystuna á 60. mínútu þegar Albert Guðmundsson (ekki Alþingsmaður) skoraði með góðu skoti eftir hornspyrnu Ásgeirs Sigurvinssonar.
Tólf mínútum síðar fengu Tyrki vítaspyrnu og úr henni skoraði Fatih Terim, núverandi landsliðsþjálfari Tyrklands. Þetta var aðeins annað af tveimur landsliðsmörkum Terims sem lék 51 landsleik á árunum 1975-1985.
Íslenska liðið hélt hins vegar haus og á 82. mínútu gulltryggði Teitur Þórðarson sigur Íslands þegar hann skoraði eftir að boltinn hafði hrokkið til hans eftir aukaspyrnu Ásgeirs.

Öfugt við leikinn í Tyrklandi var napurt á Laugardalsvellinum þetta haustkvöld, eða eins og sagði umfjöllun Morgunblaðsins: „Veður til að leika knattspyrnu var slæmt, mikill kuldi og sterkur vindur.“
Það hafði þó lítil áhrif á íslenska liðið sem náði forystunni á 20. mínútu þegar Lárus Guðmundsson, leikmaður Víkings, skoraði eftir sendingu Péturs Ormslevs. Þetta var þriðja mark Lárusar í fjórum landsleikjum.
Atli Eðvaldsson skoraði svo seinna mark Íslands á 66. mínútu með skalla eftir innkast Péturs og skalla Sigurðar Lárussonar.
Þessir tveir sigrar á Tyrkjum voru einu sigrar íslenska liðsins í undankeppni HM 1982. Ísland endaði í 4. sæti riðilsins með sex stig í átta leikjum. Tyrkir vermdu 5. og síðasta sætið með ekkert stig. Markið sem Terim skoraði gegn Íslandi var eina mark Tyrklands í þessari undankeppni.

Guðmundur Torfason kom Íslandi yfir á 62. mínútu eftir sendingu frá Ólafi Þórðarsyni, en undir lok fyrri hálfleiks hafði Friðrik Friðriksson, markvörður Íslands, varið vítaspyrnu Tanju Colak. Ünal Karaman jafnaði svo metin á 73. mínútu og þar við sat.
Íslendingar báru Tyrkjum ekki vel söguna, en í viðtali við Víði Sigurðsson, blaðamann DV, sagði Atli Eðvaldsson m.a. að Tyrkirnir hefðu dregið norska fánann en ekki þann íslenska að húni fyrir leikinn. Viðtalið við Atla má sjá á myndinni hér að neðan.

Pétur Pétursson sneri aftur í landsliðið fyrir leikinn, en hann hafði ekki spilað landsleik síðan 9. september 1987. Og Pétur sneri aftur með stæl. Hann skoraði fyrra mark Íslands á 56. mínútu eftir sendingu frá Ásgeiri Sigurvinssyni og það síðara á 72. mínútu eftir sendingu Þorvaldar Örlygssonar.
Feyyaz Uçar minnkaði muninn fimm mínútum fyrir leikslok en það dugði ekki til.
Ísland hafnaði í neðsta sæti riðilsins með sex stig, en sigurinn á Tyrkjum var eini sigur Íslands í þessari undankeppni.

Sigurður Grétarsson opnaði markareikninginn eftir aðeins 68 sekúndur, en Unal jafnaði metin á 14. mínútu. En þá var komið að Arnóri.
Hann kom Íslandi aftur yfir á 26. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf Ólafs Þórðarsonar og á 40. mínútu skoraði hann annað mark sitt og þriðja mark Íslands með flugskalla eftir aukaspyrnu Steinars Guðgeirssonar.
Arnór fullkomnaði svo þrennuna á lokamínútu fyrri hálfleiks þegar hann skoraði enn og aftur með skalla eftir fyrirgjöf Ólafs. Arnór skoraði svo sitt fjórða mark á 64. mínútu eftir sendingu Ríkharðs Daðasonar.

Staðan var 3-0 eftir hálftíma eftir tvö mörk frá Saffet Sancali og eitt frá Hakan Sükür, markahæsta leikmanni í sögu tyrkneska landsliðsins. Sükür og Sergen Yalcin fullkomnuðu svo sigurinn með tveimur mörkum á fjögurra mínútna kafla í seinni hálfleik.
Eyjólfur Sverrisson fékk besta færi Íslands seint í leiknum, en skaut beint á Engin Ipekoglu, markvörð Tyrkja.
Íslenska liðið spilaði öllu betri varnarleik í seinni leiknum á Laugardalsvelli sem lyktaði með markalausu jafntefli. Einungis rúmlega 2000 áhorfendur voru á leiknum.
Ísland endaði í neðsta sæti riðilsins með aðeins fimm stig, en Tyrkir lentu í öðru sæti með 15 stig og komust þ.a.l. á EM í fyrsta sinn.