Körfubolti

LeBron fór í megrun

LeBron er helköttaður.
LeBron er helköttaður. mynd/instagram
Besti körfuboltamaður heims, LeBron James, verður seint sakaður um að vera í lélegu formi en hann fór engu að síður í heljarinnar megrun í sumar.

James hefur ekkert verið að gefa upp síðustu ár hversu þungur hann sé en hermt er að hann hafi verið í kringum 120 kíló.

Hann er aftur á móti kominn í kringum 110 kílóin núna eftir 67 daga megrunarkúr.

„Ég hef ekki verið svona léttur í mörg ár en mér líður rosalega vel," sagði LeBron í viðtali á CNN en hann sleppti því líka að fá sér pönnukökur, ís og súkkulaðibitakökur sem eru hans uppáhald.

„Ég mátti ekki fá nein kolvetni, engan sykur, engar mjólkurvörur. Ég neitaði mér um allt. Ég freistaðist aldrei til að fá mér súkkulaðibitaköku. Mig var farið að dreyma að smákökuskrímslið væri að éta mig," sagði LeBron og hló.

Hann hefur verið duglegur við að sýna nýju línurnar á Instagram og hefur fengið mikið hrós fyrir skurðinn.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×