Íslenski boltinn

Eyjólfur: Skilst að þeir séu klárir

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Eyjólfur og Tómas Ingi Tómasson, aðstoðarþjálfari, á æfingunni í dag.
Eyjólfur og Tómas Ingi Tómasson, aðstoðarþjálfari, á æfingunni í dag. Vísir/Pjetur
„Það er mikil spenna fyrir leiknum á morgun. Nú vita menn hvað þeir eru að fara út í og þekkja mótherjana betur,“ sagði Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U-21 árs landsliðsins Íslands, í samtali við Vísi fyrir æfingu landsliðsins í Egilshöll í dag.

Ísland og Danmörk gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum í Álaborg. Kristján Gauti Emilsson og Hjörtur Hermannsson gátu ekki tekið þátt í þeim leik vegna meiðsla, en Eyjólfur segir að þeir verði væntanlega leikfærir á morgun.

„Mér skilst að þeir séu klárir núna, en það kemur bara í ljós hvað verður á morgun,“ sagði Eyjólfur og bætti við:

„Það eru ýmsir möguleikar. Við verðum allavega að gera eina breytingu, Hörður Björgvin (Magnússon) er í banni og við þurfum að leysa vinstri bakvarðarstöðuna.“

Svo gæti farið að úrslitin í viðureign Íslands og Danmerkur myndu ráðast á vítapunktinum, en verði staðan markalaus eftir venjulegan leiktíma og framlengingu verður gripið til vítaspyrnukeppni.

Eyjólfur segir að liðið myndi æfa vítaspyrnur eftir æfinguna í dag.

„Danirnir eru allavega byrjaðir að æfa vítaspyrnur og þetta gæti farið alla leið í vítaspyrnukeppni. Við munum taka vítaspyrnurnar fyrir í lok æfingar, það er ekki spurning. Það eiga ekki að vera neinar tilviljanir. Æfingin skapar meistarann, það er bara þannig.

„Við ætlum að skoða hverjir eru líklegir og hafa áhuga á að taka vítaspyrnur. Það er oft gott að gera það fyrr, en ekki í hita leiksins. Við ætlum að vera vel undirbúnir og menn verða að vita út í hvað þeir eru að fara,“ sagði Eyjólfur að endingu.


Tengdar fréttir

Lars: Áttum gott spjall við Eyjólf

A-landsliðið nýtur krafta Jóns Daða Böðvarssonar en ekki U21 árs liðið sem á fyrir höndum mikilvæga leiki gegn Dönum.

Hólmbert: Tók á að verjast svona mikið

"Þetta þarf maður stundum að gera þegar maður er að spila á útivelli gegn mjög góðu liði," segir framherjinn Hólmbert Aron Friðjónsson og glotti eftir markalausa jafnteflið í Álaborg í kvöld.

Guðmundur: Annað hugarfar á útivelli

"Ég hefði oft á tíðum viljað sjá okkur halda boltanum betur í leiknum. Það voru mikil hlaup um allan völl en á miðjunni var þetta sérstaklega erfitt," sagði miðjumaðurinn Guðmundur Þórarinsson eftir markalausa jafntefli gegn Dönum í Álaborg í kvöld.

Ólafur Karl: Erfitt að glíma við Scholz

"Þetta var erfitt enda okkar áætlun að verjast. Ég ætlaði ekkert að fara á móti því," sagði Stjörnumaðurinn Ólafur Karl Finsen eftir leik Danmerkur og Íslands í Álaborg.

Einn nýliði í U-21 árs landsliðinu

Eyjólfur Sverrisson hefur valið hópinn hjá íslenska U-21 árs landsliðinu sem mætir Danmörku í tveimur umspilsleikjum um sæti í úrslitakeppni EM 2015 í Tékklandi.

Enginn leikmaður svindlaði allan leikinn

Hið sókndjarfa U-21 árs lið Dana hafði nánast skorað að vild í undankeppni EM en átti engin svör við sterkum varnarleik Íslands í Álaborg í gær. Rimma liðanna um laust sæti á EM er galopin eftir markalaust jafntefli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×