Handbolti

Birna Berg markahæst í sigri Sävehof

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Birna Berg Haraldsdóttir.
Birna Berg Haraldsdóttir. Mynd/frammyndir.123.is
Íslenska landsliðskonan Birna Berg Haraldsdóttir átti flottan leik í kvöld þegar Sävehof vann 18 marka útisigur á Skånela IF, 37-19, í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Birna Berg skoraði sex mörk í leiknum og var markahæst í Sävehof-liðinu ásamt Julia Eriksson sem skoraði líka sex mörk.

Birna Berg nýtti sex af átta skotum sínum og átti einnig tvær stoðsendingar á félaga sína.

Þetta eru góðar fréttir fyrir íslenska landsliðið en Birna Berg er í landsliðshópnum fyrir leiki á móti Ítalíu og Makedóníu í forkeppni HM 2015.

Sävehof hefur unnið átta fyrstu leiki tímabilsins og er eitt á toppi deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×