Handbolti

Björgvin prófar nýjar og áhugaverðar greiðslur

Svona lítur Björgvin út í dag.
Svona lítur Björgvin út í dag. mynd/instagram
Hárið á Björgvini Páli Gústavssyni hefur oft vakið athygli en þó aldrei meira en núna.

Í gær birti hann mynd af sér á Instagram þar sem hann var búinn að láta flétta hárið á sér. Landsliðsfyrirliðinn, Guðjón Valur Sigurðsson, var ekki hrifinn.

„Nei elsku Bjöggi minn! Þetta er ekki neitt! Viltu vinsamlegast aldrei gera þetta aftur," skrifaði Guðjón við myndina.

Í dag fóru flétturnar úr og útkoman er vægast sagt áhugaverð. Spurning hvort framtíðargreiðslan sé komin hjá markverðinum líflega?

Hér að neðan má sjá myndirnar tvær og einnig mynd af Björgvini með glæsilega mottu í tilefni nóvember.

Er þetta ekki eitthvað?...

A photo posted by Björgvin Páll Gústavsson (@bjoggi) on

En hvað með þetta?...

A photo posted by Björgvin Páll Gústavsson (@bjoggi) on

#Movember

A photo posted by Björgvin Páll Gústavsson (@bjoggi) on




Fleiri fréttir

Sjá meira


×