Sammer: Guardiola er svolítið klikkaður Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. nóvember 2014 11:30 Klikkaður? Ég? vísir/getty
Matthias Sammer, yfirmaður knattspyrnumála hjá Þýskalandsmeisturum Bayern München, segir að Pep Guardiola, þjálfari liðsins, sé svolítið klikkaður en engu að síður sé gaman að vinna með honum. Sammer, fyrrverandi Evrópumeistari með Dortmund og Þýska landsliðinu, skrifaði undir nýjan þriggja ára samning við Bayern í vikunni, en á Allianz-vellinum hefur allt verið í blóma undanfarin misseri. „Guardiola er snillingur sem þjálfari og svolítið klikkaður en á jákvæðan hátt. Eina sem ég get sagt er að það er mjög gaman að eltast við leikmenn með honum. Það er yndislegt að vinna með Guardiola,“ sagði Sammer eftir undirskriftina. Phillip Lahm, fyrirliði Bayern München, meiddist illa á dögunum og segir Sammer að nú verði þeir sem hafa fengið minna að spila að nýta tækifærið. „Það var áfall að heyra fréttirnar því Phillip hefur haft svo mikil áhrif á liðið sem fyrirliði. Við óskum honum alls hins besta og vonum að hann verði í lagi. En nú þýðir ekkert að vera sorgmæddur. Við þurfum bara að taka okkur taki og horfa fram á veginn,“ sagði Sammer. „Við erum með nógu stóran hóp og erum að fá menn eins og Bastian Schweinsteiger aftur líkt og Thomas Müller sem meiddist aðeins í vikunni. Nú mun þjálfarinn tala við Bastian því hann er reynslumikill. Hann verður klár bráðum.“
Þýski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Sjá meira