Handbolti

Þrír íslenskir sigrar í fjórum leikjum

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Geir Sveinsson
Geir Sveinsson vísir/getty
Lærisveinar Geirs Sveinssonar í Magdeburg lögðu Balingen-Weilstetten 27-19 á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld en fjórir leikir voru á dagskrá.

Magdeburg er í fjórða sæti deildarinnar með 21 stig en Balingen er í 13. sæti með 15 stig.

Rúnar Kárason skoraði eitt mark fyrir Hannover-Burgdorf sem lagði Lemgo 31-27 á heimavelli. Hannover-Burgdorf var 21-12 yfir í hálfleik.

Hannover- Burgdorf er í 9. sæti deildarinnar með 17 stig. Lemgo er í næst neðsta sæti með 6 stig.

Arnór Þór Gunnarsson skoraði 7 mörk fyrir Bergischer sem tapaði 29-26 gegn Lu-Friesenheim á heimavelli. Björgvin Páll Gústafsson varði 6 skot í marki Bergischer sem er í 14. sæti með 15 stig en Lu-Friesenheim er með 6 stig í 17. sæti.

Gunnar Steinn Jónsson skoraði eitt mark fyrir Gummersbach sem lagði Wetzlar 23-21 á heimvelli.

Gummersbach er í 8. sæti með 18 stig. Wetzlar er þremur sætum neðar með tveimur stigum minna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×