Handbolti

Tandri markahæstur í mikilvægum sigri nýliðanna

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Tandri Már Konráðsson.
Tandri Már Konráðsson. vísir/stefán
Nýliðar Ricoh unnu góðan og þýðingarmikinn sigur á IK Sävehof, 29-22, í 17. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í kvöld.

Sävehof, sem er margfaldur sænskur meistari, var í sjötta sæti fyrir leikinn en Ricoh í því ellefta.

Tandri Már Konráðsson stóð sig vel og skoraði sex mörk úr tólf skotum, en hann skoraði mest allra á vellinum.

Sigurinn fleytir nýliðunum í 15 stig og upp að hlið Drott og Hammarby.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×