Tilraunaverkefni sem var ekki útboðsskylt Gunnar Einarsson skrifar 28. maí 2014 07:30 Félagsleg heimaþjónusta hefur aldrei verið boðin út hér á landi. Þjónustan er viðkvæm og persónuleg og nauðsynlegt hefur þótt að fá reynslu á störf einkaaðila áður en farið verði í útboð. Flest sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu kaupa þjónustu af fyrirtækinu Sinnum auk annarra fyrirtækja. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu kaupir Garðabær félagslega heimaþjónustu af fyrirtækinu Sinnum og reyndar af fleiri fyrirtækjum líka. Þjónusta Sinnum felst annars vegar í þrifum á heimilum fólks og hins vegar í svokölluðum innlitum þar sem fólki er veitt ýmis persónuleg aðstoð eftir þörfum. Þjónustuþegar í Garðabæ geta valið um að fá þjónustuna frá Sinnum, frá starfsfólki Garðabæjar eða frá fyrirtækinu ISS, sem sinnir að vísu aðeins þrifum en ekki innlitum. Einnig hafa verið gerðar tilraunir með að kaupa þjónustu af fleiri fyrirtækjum. Félagsleg heimaþjónusta er viðkvæm, persónuleg þjónusta. Fyrir nokkrum árum var staðan sú að erfitt var að manna störf við heimaþjónustu og það mynduðust biðlistar með tilheyrandi óþægindum fyrir þá sem þurfa á henni að halda. Til að ráða bót á þessu var ákveðið að leita nýrra leiða og kaupa hluta þjónustunnar frá einkaaðilum. Fyrsti samningurinn þar að lútandi var gerður við fyrirtækið ISS á árinu 2006 um þrif á heimilum. Áður hafði fjölskyldusvið Garðabæjar kannað áhuga nokkurra fyrirtækja en ISS var það eina sem lýsti yfir áhuga á að fara inn á þetta svið. Á árinu 2009 var fyrirtækið Sinnum komið á markaðinn og var þá ákveðið að óska eftir tilboði frá fyrirtækinu, bæði í þrif og innlit. Tilboð Sinnum var metið m.a. út frá kostnaði bæjarins við sömu þjónustu og verðinu sem samið hafði verið um við ISS. Niðurstaðan var sú að tilboð Sinnum væri hagstætt og hagstæðara en að bærinn sinnti þjónustunni sjálfur.Ekki útboðsskylt verkefni Samningur Garðabæjar og Sinnum var tímamótasamningur en með honum fór af stað tilraun um samstarf sveitarfélags og einkaaðila til að sinna þessari tilteknu þjónustu. Samningurinn kveður á um einingaverð, þ.e. að samningsupphæð fari eftir magni þjónustunnar og er miðað við að lágmarki 50 heimili. Samningurinn felur því ekki í sér skuldbindingu um ákveðna samningsfjárhæð heldur er það í hendi bæjarins að stjórna og skipuleggja starfsemina og með því að ákvarða samningsfjárhæðina. Það er því rangt að halda því fram að verkefnið hafi verið útboðsskylt þegar samningurinn var gerður. Í upphafi var samningurinn gerður til eins árs og gilti til 15. janúar 2010 en frá þeim tíma hefur hann verið endurnýjaður til eins árs í senn vegna góðrar reynslu og ánægju þeirra sem fá þjónustuna. Sveitarfélögum ber lögum samkvæmt skylda til að bjóða þeim íbúum sem á þurfa að halda upp á félagslega heimaþjónustu. Það er mat bæjaryfirvalda að nauðsynlegt hafi verið að afla reynslu af þróun samninganna við ISS og Sinnum áður en teknar yrðu ákvarðanir um framtíðarskipulag og fyrirkomulag á jafn mikilvægri starfsemi og félagleg heimaþjónusta er. Sú reynsla liggur nú fyrir og mun nýtast nýrri bæjarstjórn við mótun á fyrirkomulagi þjónustunnar til framtíðar. Þótt blaðamaður Fréttablaðsins Sveinn Arnarsson, sem var reyndar kosningastjóri Samfylkingarinnar á Akureyri í fyrra, hafi haft það að sínu markmiði, nú korteri fyrir kosningar, að gera samning Garðabæjar og Sinnum tortryggilegan, er rétt að geta þess að í dag kaupa flest sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu sambærilega þjónustu af Sinnum, sem sýnir að tímamótaverkefnið sem Garðabær hratt af stað fyrir nokkrum árum hefur gefið góða raun. Í öllum tilvikum er verklagið það sama, þ.e. óskað er eftir tilboðum í tiltekna þjónustu og samið um fast einingaverð. Umfangið ræðst síðan af eftirspurn og endanleg reikningsupphæð sömuleiðis. Það skýtur því skökku við að reynt sé að gera viðskipti Garðabæjar við fyrirtækið tortryggileg og kveikir þá hugsun að þar liggi aðrar hvatir að baki en að upplýsa lesendur.Aldrei verið boðið út Rétt er að taka fram að það hefur aldrei verið viðhaft útboð á þessari þjónustu hér á landi. Flest sveitarfélög, og Garðabær þar með talinn, vilja að það sé í höndum íbúanna sjálfra að geta breytt þjónustunni og/eða óskað eftir nýjum aðila til að sinna henni. Það er vandasamara ef verk er boðið út. Við mótun á því hvernig þessari viðkvæmu þjónustu verður háttað til framtíðar mætti auk þess að skoða útboðsleiðina, hugsa sér að líta til Norðurlandanna. Þar er heimaþjónusta víða „valfrjáls“ en ekki boðin út í almennu útboði. Í stað þess að sveitarfélag semji við eitt eða tvö fyrirtæki um heimaþjónustu velja íbúarnir sér eitt af þeim fyrirtækjum sem sveitarfélagið hefur staðfest að sé viðurkennt á þessu sviði. Þannig má fara ólíkar leiðir að því markmiði að bjóða íbúunum upp á góða þjónustu, þegar þeir þurfa á henni að halda. Það hefur Garðabær getað gert á undanförnum árum, með því að kaupa hluta þjónustunnar frá einkaaðila. Í Garðabæ er enginn biðlisti eftir heimaþjónustu og kvartanir vegna hennar eru afar fátíðar. Þeir sem þurfa á þjónustunni að halda eru ánægðir og það er í mínum huga aðalatriðið en ekki hvernig eignarhaldi eins af þeim fyrirtækjum sem hana veita er háttað. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Forsetakosningar 2016 Skoðun Kosningar 2014 Höfuðborgarsvæðið Tengdar fréttir Samfylkingin segir vinnubrögð Sjálfstæðisflokksins forkastanleg Ekkert var fjallað um samninga meirihluta Sjálfstæðismanna í Garðabæ við Sinnum ehf. í fjölskylduráði bæjarins samkvæmt fulltrúa Samfylkingarinnar. 27. maí 2014 13:55 Fyrrum bæjarstjóri í tugmilljóna viðskiptum við bæinn án útboðs Fyrirtækið Sinnum ehf. er í viðskiptum við Garðabæ vegna samninga um heimaþjónustu. Þjónustan var ekki boðin út eins og reglur kveða á um. Fyrrverandi bæjarstjóri er stjórnarformaður og stofnandi fyrirtækisins. 27. maí 2014 07:00 Samningur Garðabæjar við Sinnum ehf. ekki einsdæmi FÓLKIÐ- í bænum segir að þrátt fyrir ítrekaðar bókanir og fyrirspurnir um þjónustusamninga bæjarins fáist lítil svör við "eðlilegum“ spurningum um verklag innan stjórnsýslunnar. 27. maí 2014 15:52 Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Sjá meira
Samfylkingin segir vinnubrögð Sjálfstæðisflokksins forkastanleg Ekkert var fjallað um samninga meirihluta Sjálfstæðismanna í Garðabæ við Sinnum ehf. í fjölskylduráði bæjarins samkvæmt fulltrúa Samfylkingarinnar. 27. maí 2014 13:55
Fyrrum bæjarstjóri í tugmilljóna viðskiptum við bæinn án útboðs Fyrirtækið Sinnum ehf. er í viðskiptum við Garðabæ vegna samninga um heimaþjónustu. Þjónustan var ekki boðin út eins og reglur kveða á um. Fyrrverandi bæjarstjóri er stjórnarformaður og stofnandi fyrirtækisins. 27. maí 2014 07:00
Samningur Garðabæjar við Sinnum ehf. ekki einsdæmi FÓLKIÐ- í bænum segir að þrátt fyrir ítrekaðar bókanir og fyrirspurnir um þjónustusamninga bæjarins fáist lítil svör við "eðlilegum“ spurningum um verklag innan stjórnsýslunnar. 27. maí 2014 15:52
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun