Stórskytturnar sameinaðar - hafa skorað 1757 þrista saman Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. janúar 2015 12:30 Magnús Þór Gunnarsson og Páll Axel Vilbergsson. Vísir/Ernir
Magnús Þór Gunnarsson samdi í gær við Skallagrím og mun klára tímabilið með Borgnesingum í Domninos-deild karla í körfubolta. Með þessu sameinast tvær af bestu þriggja stiga skyttum úrvalsdeildar karla frá upphafi en fyrir hjá liðinu er Páll Axel Vilbergsson. Páll Axel bætti met Guðjóns Skúlasonar í þriggja stiga körfum á síðustu leiktíð og fyrr í vetur varð hann sá fyrsti til að skora þúsund þrista í úrvalsdeildinni. Magnús Þór er kominn upp fyrir Teit Örlygsson og er í 3. sætinu 217 þristum á eftir Guðjóni Skúlasyni. Saman hafa þessir reynsluboltar alls skorað 1757 þrista í úrvalsdeild karla, Páll Axel 1009 þriggja stiga körfur í 391 leik en Magnús Þór 748 þriggja stiga körfur í 303 leikjum. Það má bóka það að aldrei hafa leikmenn spilað saman í úrvalsdeild karla sem hafa skorað svona marga þriggja stiga körfur saman. Þeir félagar eru ekki mikið að gefa eftir í langskotunum og hafa verið duglegir að smella þristunum niður í vetur. Páll Axel og Magnús Þór eru báðir meðal þeirra sem hafa skorað flesta þrista í leik. Páll Axel er með 16 þrista í 6 leikjum eða 2,67 að meðaltali í leik en Magnús Þór setti niður 21 þrist í 9 leikjum með Grindavík eða 2,33 að meðaltali í leik.
Dominos-deild karla Mest lesið Fyrrum kappaksturshetja og fjölskylda hans létust í flugslysi Sport Segir fjórðung í bók Óla ósannan Íslenski boltinn „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Fótbolti „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Enski boltinn Hætti við að keppa út af hundinum sínum Sport Elías mættur til meistaranna Íslenski boltinn Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum Fótbolti „Er því miður kominn í jólafrí“ Handbolti KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Íslenski boltinn Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ Fótbolti Fleiri fréttir Stjarnan - Álftanes | Nágrannaslagur í Garðabæ Ármann - ÍA | Nýliðaslagur í höllinni Jokic tók NBA-met af Abdul-Jabbar í nótt KR á frábærum stað en getur ekki unnið titilinn Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega að líta í kringum mig“ Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 93-83 | Enn taplausir í Sláturhúsinu „Ánægður að spila ekki betur en þetta en vinna samt“ „Svo lengi sem það er ekki jákvæð og góð umfjöllun um okkur erum við sáttir“ „Hefðum þurft að hafa heppnina með okkur í liði“ ÍR - Valur 82-85 | Baráttusigur í Breiðholti „Sáttur að geta farið heim, borðað vel og fengið mér nokkra kalda“ Tindastóll - KR 130-117 | Kláruðu gestina í seinni hálfleik Þór Þ. - Grindavík 94-106 | Baráttusigur gegn löskuðu liði Þórs Liðsfélagar Guðbjargar ekki fæddir þegar hún spilaði fyrsta leikinn Þola þeir ekki gott umtal? „Helmingur minna leikmanna skilur ekki íslensku“ „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út Sjá meira