Handbolti

Rut skoraði eitt í grátlegu tapi Randers

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Rut í leik með landsliðinu
Rut í leik með landsliðinu vísir/valli
Ringköbing lagði Randers í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag 26-25. Ringköbing skoraði sigurmarkið tveimur sekúndum fyrir leikslok.

Randers jafnaði metin þegar hálf mínúta var til leiksloka en það dugði ekki til og grátlegt tap Rutar Jónsdóttur og félaga staðreynd.

Rut skoraði eitt mark en hún tók tvö skot í leiknum.

Randers er í fimmta sæti deildarinnar með 16 stig í 14 leikjum. Ringköbing er í tíunda og þriðja neðsta sæti með 9 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×