Íslenski boltinn

Íslensku stelpurnar spila við Holland í apríl

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslensku stelpurnar fagna marki á móti Serbíu í fyrra.
Íslensku stelpurnar fagna marki á móti Serbíu í fyrra. Vísir/Stefán
Knattspyrnusambönd Íslands og Hollands hafa komist að samkomulagi um að kvennalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik í Kórnum 4. apríl næstkomandi en þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.

Auk leiksins við Holland í ár hefur einnig verið samið um að þjóðirnar mætist líka í Hollandi á næsta ári en sá leikur verður spilaður á leikstað í úrslitakeppni EM 2017.

Þessi vináttulandsleikur gegn Hollandi í apríl mun koma í kjölfarið á næsta verkefni kvennalandsliðsins sem er hið sterka Algarve mót sem hefst í byrjun næsta mánaðar.  Ísland er í riðli með Bandaríkjunum, Noregi og Sviss í Algarve mótinu í ár og spilar sinn fyrsta leik á móti Sviss 4. mars.

Dregið verður svo í undankeppni EM kvenna 2017 þann 13. apríl en það eru einmitt Hollendingar sem verða gestgjafar úrslitakeppninnar að þessu sinni.  Holland, sem gestgjafar, munu því fara beint í úrslitakeppnina en spennandi verður að sjá með hvaða þjóðum Ísland lendir í riðli að þessu sinni.  

Þessir leikir eru því mikilvægir liðir í undirbúningi fyrir EM, ekki síst leikurinn á næsta ári sem verður leikinn á einum af þeim leikvöngum sem úrslitakeppnin fer fram á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×