Handbolti

Ljónin á toppinn í Þýskalandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Alexander Petersson skoraði fjögur mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen sem vann ellefu marka sigur á Göppingen, 33-22, í kvöld.

Sigurinn var öruggur eins og tölurnar bera með sér en með honum náði Löwen að komast upp fyrir Kiel á markatölu og í efsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar. Bæði lið eru með 38 stig.

Stefán Rafn Sigurmannsson var ekki á meðal markaskorara Löwen í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×