Handbolti

Bjarki Már stórkostlegur í sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bjarki Már fagnar marki með Eisenach.
Bjarki Már fagnar marki með Eisenach. Vísir/Aðsend
Nokkrir Íslendingar voru sem fyrr í eldlínunni í þýsku B-deildinni í handbolta, en þrír leikir fóru fram í deildinni í dag.

Íslendingarnir í TV Emsdetten fóru á kostum þegar liðið vann TV Bittenfeld, en lokatölur urðu tveggja marka sigur Emsdetten, 24-22.

Oddur Grétarsson skoraði átta mörk, Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði sex og Ernir Arnarson skoraði tvö. Anton Rúnarsson komst ekki á blað.

Bjarki Már Elísson lék á alls oddi í liði Eisenach sem vann Eintracht Hildesheim á heimavelli, 37-30.

Bjarki Már Elísson skoraði fimmtán mörk og Hannes Jón Jónsson bætti við tveimur. Eisenach er í sjötta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×