Handbolti

Erlingur og félagar áfram í 70 marka leik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Erlingur vill eflaust kveðja WestWien með titli eða tveimur.
Erlingur vill eflaust kveðja WestWien með titli eða tveimur. vísir/daníel
Erlingur Richardsson og lærisveinar hans í WestWien tryggðu sér sæti í undanúrslitum austurrísku bikarkeppninnar með fjögurra marka sigri, 33-37, á SC kelag Ferlach í miklum markaleik í kvöld. Staðan í hálfleik var 17-20, WestWien í vil.

Jakob Jochmann, Sebastian Frimmell og austurrísku landsliðsmennirnir Fabian Posch og Alexander Hermann skoruðu fimm mörk hver fyrir WestWien.

WestWien er sem áður sagði komið í undanúrslitin ásamt Falkensteiner Katschberg en það kemur ekki í ljós fyrr en í byrjun næsta mánaðar hvaða tvö lið til viðbótar komast í undanúrslitin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×