Handbolti

Fyrsti leikur Þorgerðar í fimmtán mánuði

Þorgerður Anna í landsleik.
Þorgerður Anna í landsleik. vísir/valli
Þorgerður Anna Atladóttir snéri aftur á handboltavöllinn í kvöld er hún spilaði sinn fyrsta leik með þýska liðinu HC Leipzig.

Þorgerður Anna komst ekki á blað er hennar lið vann þriggja marka útisigur, 26-29, á botnliði Trier. Leipzig er í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar.

Það var eflaust mjög ljúft fyrir Þorgerði að klæða sig aftur í búninginn en hún hafði ekki spilað handbolta í fimmtán mánuði vegna meiðsla.

Nú tekur við að ná leikformi á nýjan leik og vonandi að Þorgerður sé búinn með sinn skerf að óheppni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×