Handbolti

Fimmtán mánaða meiðslabarátta Þorgerðar Önnu á enda

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þorgerður Anna Atladóttir.
Þorgerður Anna Atladóttir. Vísir
Þorgerður Anna Atladóttir mun spila sinn fyrsta leik með Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld eftir því sem fram kemur á heimasíðu félagsins.

Þorgerður Anna spilaði síðast í nóvember árið 2013 og hefur því verið frá keppni í fimmtán mánuði. Hún samdi við Leipzig í vor eftir að hafa verið á mála hjá Flint/Tönsberg í Noregi.

Hún var á góðum batavegi í sumar þegar axlarmeiðslin sem hún varð fyrir á sínum tíma tóku sig upp á undirbúningstímabilinu. Fram kemur í fréttinni að hún sé reyndar kvefuð en engu að síður er búist við því að hún fái grænt ljós fyrir leikinn í kvöld.

Leipzig er sem stendur í fjórða sæti deildarinnar með 23 stig en liðið leikur gegn botnliði Trier á útivelli í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×