Handbolti

Stórsigur hjá Löwen

Stefán Rafn Sigurmannsson.
Stefán Rafn Sigurmannsson. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen skellti sér á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Löwen valtaði þá yfir Bietigheim, 35-25. Miklir yfirburðir hjá Löwen eins og tölurnar gefa til kynna.

Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði eitt mark fyrir Löwen en Alexander Petersson var ekki með að þessu sinni. Patrick Groetzki markahæstur í liði Löwen með tíu mörk og Niklas Landin varði sextán skot í markinu.

Kiel er með sama stigafjölda og Löwen en Löwen er með betra markahlutfall eftir þennan risasigur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×