Varað við versnandi veðri Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 21. febrúar 2015 23:06 vísir/pjetur
Varað er við versnandi veðri suðvestanlands í nótt með snjókomu. Reikna má með 15-20 metrum á sekúndu á Reykjanesbraut á milli klukkan fjögur og sjö í fyrramálið, eins og á Hellisheiði. Þá rofar þó heldur til um morguninn. Áfram skafrenningur. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. Á Kjalarnesi verður byljótt og hviður þar 35-45 metrar á sekúndu frá því snemma í fyrramálið og fram undir hádegi. Mest verður veðurhæðin með suðurströndinni. Undir Eyjaföllum og í Mýrdal er spáð ofsaveðri í fyrramálið, meðalvindur 20-30 m/s snarpar hviður og kafaldsbylur. Eins um tíma í Fljótshlíð og nærri Hvolsvelli. Þá verður mjög versnandi í fyrramálið á Skeiðarársandi og í Öræfasveit þar sem saman mun fara skafrenningur, snjókoma og sandbylur.Færð og aðstæðurÞað er hálka á Hellisheiði en hálkublettir á Sandskeiði, í Þrengslum, á Reykjanesbraut og á Suðurnesjum. Hálka eða hálkublettir eru á nokkrum köflum á Suðurlandi, einkum í uppsveitum. Hálka eða hálkublettir eru allvíða á Vesturlandi. Ófært er á Fróðárheiði. Á Vestfjörðum er víðast hálka eða snjóþekja og skafrenningur. Snjóþekja og skafrenningur á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldar. Ófært er á Kleifarheiði. Hálkublettir, hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Norðurlandi og éljagangur á norðausturhorni landsins. Á Austurlandi er hálka eða hálkublettir á vegum en þæfingsfærð og skafrenningur á Vatnsskarði eystra. Greiðfært er að mestu með suðausturströndinni.Veðurvefur Vísis
Veður Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Fleiri fréttir Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Sjá meira