Erlent

Al­var­lega slösuð eftir skot­á­rás í í­þrótta­húsi

Lovísa Arnardóttir skrifar
Umfangsmiklar lögregluaðgerðir hófust í kjölfar skotárásarinnar. Myndin er úr safni af lögreglu.
Umfangsmiklar lögregluaðgerðir hófust í kjölfar skotárásarinnar. Myndin er úr safni af lögreglu. Vísir/EPA

Kona á þrítugsaldri er alvarlega slösuð í kjölfar skotárásar í íþróttahúsi í Älvsjö í suðurhluta Stokkhólms í gærkvöldi. Tveir ungir karlmenn voru snemma í morgun handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald samkvæmt vef SVT. Fjöldi var yfirheyrður í nótt vegna málsins og mennirnir handteknir í kjölfarið.

Konan, sem er á þrítugsaldri, var flutt með sjúkrabíl á sjúkrahús með áverka sem lögreglan lýsti sem „mjög alvarlegum“. Á laugardagsmorgun var ástand hennar enn lífshættulegt. 

„Við getum ekki útilokað að fleiri tengist málinu,“ er haft eftir Mats Eriksson, talsmanni lögreglunnar í Stokkhólmi, í fréttinni.

Þar kemur fram að skotárásin hafi orðið í Kämpetorpshallarna í Solberga í Älvsjö um klukkan 21 í gærkvöldi en á sama tíma stóð yfir bæði fótboltaleikur og innibandýleikur í íþróttamannvirkinu.

Konan skotmarkið

Í frétt SVT segir að þegar lögregla kom í íþróttahúsið í gær hafi gerendur verið farnir og umfangsmiklar lögregluaðgerðir hafist og stóru svæði umhverfis íþróttahúsin var lokað. Ungmenni sem voru í húsinu fengu ekki að fara út á meðan aðgerðunum stóð og voru síðar leidd út í hópum. Lestarumferð til Älvsjö-stöðvarinnar var stöðvuð tímabundið á meðan leit að hinum grunuðu stóð yfir.

Samkvæmt frétt SVT hefur lögreglan ekki greint frá því hvar mennirnir voru handteknir eða hvort þeir hafi áður komið við sögu lögreglu. Umfangsmikil rannsókn stendur yfir, meðal annars til að varpa ljósi á tilefni skotárásarinnar. Atvikið er rannsakað sem tilraun til manndráps en talið er að konan hafi verið skotmark árásarinnar.

Bjóða upp á áfallahjálp

Fram kemur í frétt SVt að vegna alvarleika árásarinnar og þess fjölda sem varð vitni að henni verði boðið upp á áfallahjálp í dag vegna málsins.

„Við lítum skotárásir alltaf mjög alvarlegum augum. Í gær virkjuðum við strax neyðarstjórn okkar. Félagsmiðstöðin verður opin í allan dag og þangað geta almenningur, börn og ungmenni leitað til að fá stuðning,“ er haft eftir Lee Orberson, hverfisstjóra í Hägersten-Älvsjö, í frétt SVT.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×