Handbolti

Vignir með fjögur mörk í sigri Midtjylland

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vignir skilaði fjórum mörkum af línunni gegn Mors-Thy.
Vignir skilaði fjórum mörkum af línunni gegn Mors-Thy. vísir/eva björk
Vignir Svavarsson og félagar hans í danska handboltaliðinu Midtjylland unnu eins marks sigur, 25-24, á Mors-Thy á heimavelli í dag.

Vignir skoraði fjögur mörk úr sex skotum fyrir Midtjylland sem er 6. sæti dönsku deildarinnar með 25 stig.

Guðmundur Árni Ólafsson skoraði tvö mörk fyrir Mors-Thy en Róbert Aron Hostert lék ekki með liðinu í dag.

Mors-Thy er í 11. sæti með 18 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×