Sverrir: Þegar við gerum hlutina saman erum við góðar Anton Ingi Leifsson í Laugardalshöll skrifar 21. febrúar 2015 15:58 Það verður fagnað í Grindavík í kvöld. vísir/þórdís
Sverrir Þór Sverrisson stýrði Grindavík til sigurs á Keflavík í úrslitaleik Powerade-bikarsins í körfubolta í Laugardalshöllinni í dag. Hann var að vonum hæstánægður þegar Vísir hitti hann að máli eftir leikinn. „Þetta var frábær sigur og það var gaman að sjá hversu grimmar og einbeittar stelpurnar mættu til leiks og við höfðum mjög gaman að þessu,“ sagði Sverrir en hvað skóp sigurinn að hans mati? „Frábær vörn, barátta og samheldni. Við lentum í vandræðum í sókninni í 4. leikhluta og skoruðum ekki í langan tíma. „Samt nálguðust þær okkur ekki að ráði því við spiluðum góða vörn,“ sagði þjálfarinn sem hefur einnig gert kvennalið Njarðvíkur að bikarmeisturum. En fór um Sverri í lokaleikhlutanum þegar Keflavík fór að þjarma að Grindavíkurstúlkum? „Tja, manni líður alltaf betur þegar maður er með góða forystu. En mér fannst við vera í þannig gír að við myndum bara bæta í.“ Grindavík fékk gott framlag frá mörgum leikmönnum og Sverrir var ánægður með liðsheildina í dag. „Það voru margar sem lögðu hönd á plóg og við erum þannig lið. Þegar við gerum hlutina hver í sínu horni höfum við verið í tómu tjóni og tapað. „En þegar við gerum hlutina saman erum við með feykilega gott lið,“ sagði Sverrir að lokum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Willum vill fara norsku leiðina Sport Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Fleiri fréttir Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Sjá meira