Handbolti

Arna Sif með sex mörk í tapi Aarhus

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arna Sif er í lykilhlutverki í íslenska landsliðinu.
Arna Sif er í lykilhlutverki í íslenska landsliðinu. vísir/valli
Arna Sif Pálsdóttir skoraði sex mörk þegar Århus tapaði fyrir Silkeborg, 25-22, í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Silkeborg var þremur mörkum yfir í hálfleik, 12-9.

Leikurinn var jafn framan af seinni hálfleik en Silkeborg átti góðan endasprett og tryggði sér sigurinn með því að vinna síðustu 12 mínútur leiksins 7-4.

Arna Sif skoraði eitt marka sinna úr vítakasti og þá var henni einu sinni vikið af velli í tvær mínútur.

Århus er í 8. sæti deildarinnar, af 12 liðum, með 18 stig eftir 21 umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×