Handbolti

Kiel með pálmann í höndunum í Meistaradeildinni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Aron í leik með Kiel gehn Flensburg.
Aron í leik með Kiel gehn Flensburg. vísir/getty
Kiel er í kjörstöðu fyrir síðari leikinn gegn Flensburg í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Kiel vann fyrri leik liðanna í Flensburg í kvöld, 30-21.

Þýskalandsmeistararnir reyndust betri á öllum sviðum handboltans. Þeir voru 16-9 yfir í hálfleik og héldu vel á spöðunum í síðari hálfleik. Níu marka sigur staðreynd, 30-21.

Nicklas Ekberg og Marko Vujin skoruðu báðir sjö mörk fyrir Kiel, en Aron Pálmarsson skoraði tvö. Alfreð Gíslason þjálfar að sjálfsögðu lið Kiel.

Anders Eggert var markahæstur hjá Flensburg með fimm mörk, en síðari leikur liðanna fer fram næsta sunnudag í Kiel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×