Innlent

Mikill vatnsleki í kjallaraíbúð við Háaleitisbraut

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Hér varð vatnsleki í kjallaranum og þegar fólkið vaknaði í morgun var um tíu til tuttugu sentímetra djúpt vatn um alla íbúð,“ segir Guðmundur Halldórsson varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

Slökkviliðsmenn hafa staðið í ströngu í morgun en meðal annars flæddi inn í íbúð við Háaleitisbraut.

„Fólkinu var skiljanlega mjög brugðið. Við erum aðallega að fá inn tilkynningar um vatnstjón í dag.“

Guðmundur segir að rigningin hafi verið gríðarlega mikil í morgun sem hafi ollið því mikla flóði sem íbúar á höfuðborgarsvæðinu urðu vitni af. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×