Handbolti

Hundrað prósent leikur Örnu dugði ekki

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arna Sif Pálsdóttir
Arna Sif Pálsdóttir Vísir/Valli
Arna Sif Pálsdóttir átti mjög flottan leik með SK Aarhus í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðið tapaði á heimavelli á móti Midtjylland. Rut Jónsdóttir og félagar fögnuðu aftur á móti sigri.

Arna Sif Pálsdóttir skoraði átta mörk úr átta skotum og var markahæst hjá SK Aarhus sem tapaði 31-23 fyrir Midtjylland. Line Uno skoraði átta mörk eins og Arna en þurfti til þess tíu skot.

SK Aarhus komst í 3-1 en í stöðunni 7-7 skildu leiðir. Midtjylland var komið í 15-9 í hálfleik og vann að lokum mjög öruggan sigur.

Rut Jónsdóttir skoraði á sama tíma þrjú mörk fyrir Randers HK í 28-26 útisigri á Köbenhavn Håndbold. Tvö af mörkunum hjá Rut komu í fyrri hálfleiknum en staðan var 16-15 fyrir Randers í hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×