Innlent

Akstursskilyrðin betri fyrripart morgundags

Bjarki Ármannsson skrifar
Vaxandi suðvestanátt er spáð á morgun.
Vaxandi suðvestanátt er spáð á morgun. Mynd/Veðurstofa Íslands
Því fyrr sem lagt er af stað heim úr páskafríinu á morgun, því betri eru akstursskilyrðin. Þetta segir í spá vakthafandi veðurfræðings á Veðurstofu Íslands nú í kvöld. Á morgun er yfirleitt von á hæglætisveðri og lítilli úrkomu um land allt fyrir hádegi. Síðdegis er hins vegar spáð vaxandi suðvestanátt með skúrum og síðar éljum.

Framan af degi verður hiti um tvö til níu stig með suðaustan átta til þrettán metrum á sekúndu og rigning eða súld. Hægari vindur verður þó norðaustan til og þurrt að kalla þar. Síðdegis gengur svo í suðvestan átta til fimmtán stig með skúrum en bjartviðri er spáð á austanverðu landinu.

Annað kvöld er svo spáð suðvestan tíu til átján vestan til á landinu og él. Þá fer veður kólnandi og hiti verður um núll til fimm stig annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×