Juraj Grizelj fær loks leikheimild hjá KA Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. apríl 2015 12:30 Juraj Grizelj mun styrkja KA-liðið gríðarlega mikið. vísir/andri marinó
Króatíski miðjumaðurinn Juraj Grizelj, sem spilaði með Grindavík síðustu tvö sumur í 1. deild karla í fótbolta, fær loks leikheimild með KA í dag. Þetta hefur Vísir eftir heimildum. Grizelj losaði sig undan samningi við Grindavík í byrjun árs og KA greindi svo frá því á heimasíðu sinni að félagið væri búið að semja við Króatann þann 14. febrúar. Grizelj hefur verið einn albesti leikmaður 1. deildarinnar undanfarin ár, en hann skoraði 21 mark í 44 deildar- og bikarleik auk þess að leggja upp mikið af mörkum. Þrátt fyrir að semja við KA um miðjan febrúar hefur Króatinn ekki enn fengið leikheimild með KA, en hann hefur misst af sex leikjum í Lengjubikarnum og ekki getað tekið þátt í undirbúningi norðanliðsins af krafti. Hann verður þó klár í slaginn fyrir leik liðsins gegn KA í átta liða úrslitum Lengjubikarsins í Úlfarsárdalnum á morgun. Grizelj var með samning við Grindavík út tímabilið 2015, en borgaði upp samninginn sinn hjá Suðurnesjaliðinu. Samkvæmt heimildum Vísis kostaði það Króatann 5.000 evrur eða 730.000 íslenskar krónur. Hann ætlaði að reyna fyrir sér erlendis en þegar það tókst ekki og KA varð þess var samdi Akureyrarliðið við Grizelj. Samkvæmt heimildum Vísis gekk KA-mönnum erfiðlega að fá Grindvíkinga til að skrifa undir félagaskiptin, en það dróst í tvo mánuði. Málið leystist svo á fundi liðanna með KSÍ í gær. Grizelj ætti sem fyrr segir að vera kominn með leikheimild fyrir leik KA og Fylkis í átta liða úrslitum Lengjubikarsins á morgun.
Íslenski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira