Heilsa

Af hverju laðast þú að sumum frekar en öðrum?

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Fólk hefur lengi velt því fyrir sér hvað ráði því að sumu fólki tökum við eftir og löðumst að en öðrum alls ekki. 

Þetta hefur verið útskýrt útfrá lykt og fermónum, eða andlitsfalli eða að sumir eigi sér ákveðnar týpur nú eða jafnvel að hvar kona er á tíðahringnum skipti máli.

Í þessari heimildarmynd frá National Geographic er farið yfir ýmsar tilgátur um aðlöðun og hvernig hún virkar og hvaða þættir hafa áhrif á hvort við löðumst að fólki, þetta dæmigerða ást-við-fyrstu-sýn, eða hvort aðstæður geti haft áhrif á því hvernig við upplifum hina manneskjuna og séum líklegri til að laðast að viðkomandi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×