Handbolti

Aue vann Íslendingaslaginn

Bjarki Már í leik með Eisenach.
Bjarki Már í leik með Eisenach.
Lið Rúnars Sigtryggssonar, EHV Aue, vann mikilvægan sigur í þýsku B-deildinni í dag er tvö Íslendingalið mættust.

Aue vann leikinn, 29-27, og komst upp í sjötta sæti. Þetta var dýrt tap fyrir Eisenach sem er í fjórða sæti og harðri baráttu um að fara upp.

Bjarki Már Elísson skoraði sjö mörk fyrir Eisenach og Hannes Jón Jónsson eitt.

Sigtryggur Rúnarsson og Hörður Fannar Sigþórsson skoruðu sitt hvort markið fyrir Aue en Árni Sigtryggsson og Bjarki Már Gunnarsson komust ekki á blað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×