Keflavík í kjörstöðu | Jafnt hjá Grindavík og Snæfelli Anton Ingi Leifsson skrifar 11. apríl 2015 18:20 Carmen var frábær í liði Keflavíkur. vísir/stefán
Keflavík er komið í kjörstöðu í undanúrslitum Dominos-deildar kvenna, en liðið er 2-0 yfir í einvígi sínu gegn Haukum. Í hinu einvíginu, milli Grindavíkur og Snæfell, er staðan jöfn 1-1. Haukastúlkur byrjuðu betur gegn Keflavík og leiddu í hálfleik 39-33. Þær unnu fyrsta leikhlutann 17-14 og þann næsta 22-19. Í þriðja leikhluta vöknuðu Suðurnesjarstúlkur. Þær unnu hann 20-13 og allar líkur á spennandi lokaleikhluta. Keflavík gerði hins vegar vel, hélt fengnum hlut og vann að lokum sjö stiga sigur, 74-67. Carmen Tyson-Thomas skoraði 31 stig fyrir Keflavík, tók þrettán fráköst og gaf þrjár stoðsendinagr. Sara Rún Hinriksdóttir átti einnig frábæran leik fyrir Keflavík, en hún skoraði 29 stig. Þær saman skoruðu 60 af 74 stigum Keflavíkur. LeLe Hardy gerði 28 stig fyrir heimastúlkur, tók sextán fráköst og gaf sex stoðsendingar. Auður Íris Ólafsdóttir skoraði tíu stig fyrir Hauka. Haukastúlkur eru komnar með bakið upp við vegg. Staðan er 2-0 í einvíginu fyrir Keflavík, en næsti leikur liðanna fer fram á þriðjudag. Grindavík jafnaði metin gegn Snæfell í 1-1 í afar kaflaskiptum leik, en lokatölur 79-72. Snæfell var sterkara liðið í fyrri hálfleik, en staðan var 33-42 fyrir gestina úr Stykkishólmi í hálfleik. Í þriðja leikhluta fór allt í baklás hjá gestunum. Grindavík vann þann leikhluta 22-7 og vann að lokum sjö stiga sigur, 79-72. Pálína Gunnlaugsdóttir og Kristina King voru frábærar í liði Grinadvíkur í dag. Kristina skoraði 30 stig og tók þrettán fráköst, en Pálina gerði 31 stig og tók átta fráköst. Kristine Denise McCarthy skoraði 36 stig, tók fjórtán fráköst og gaf eina stoðsendingu. Hildur Sigurðardóttir gerði þrettán stig, tók átta fráköst og gaf átta stoðsendingar. Liðin mætast einnig aftur á þriðjudag.
Dominos-deild kvenna Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Átta rauð spjöld í sama leiknum Fótbolti McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Enski boltinn Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Sport Fleiri fréttir LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Sjá meira