Handbolti

Lið Dags slapp með skrekkinn gegn botnliðinu

Dagur Sigurðsson.
Dagur Sigurðsson. vísir/getty
Lið Dags Sigurðssonar, Füchse Berlin, komst í hann krappann í kvöld gegn botnliði Bietigheim í þýska boltanum.

Eftir mikinn spennuleik náði Berlin að merja eins marks sigur, 33-32.

Það var Petar Nenadic sem kom Berlin til bjargar en hann skoraði tvö síðustu mörk leiksins. Varnarmaðurinn Pavel Horak varði svo lokaskot Bietigheim í leiknum.

Berlin komst upp í sjöunda sæti deildarinnar með sigrinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×