Handbolti

Þórey Rósa og félagar komnar í undanúrslitin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þórey Rósa Stefánsdóttir.
Þórey Rósa Stefánsdóttir. Vísir/Valli
Landsliðskonan Þórey Rósa Stefánsdóttir og félagar hennar í Vipers frá Kristiansand tryggðu sér sæti í undanúrslitum norska kvennaboltans í dag.

Vipers-liðið tapaði reyndar með þremur mörkum á útivelli á móti Tertnes, 24-21, en komst áfram á fimm marka sigri á heimavelli í fyrri leiknum.

Þórey Rósa komst ekki á blað í dag en skoraði þrjú mörk í fyrri leiknum sem liðið vann 27-22. Þórey tók eitt skot í leiknum en það var varið.

Tertnes var komið fimm mörkum yfir þegar mínúta var eftir og hefði með öllu óbreyttu komist áfram á fleiri mörkum á útivelli.

Vipers-stelpurnar skoruðu hinsvegar tvö síðustu mörkin og tryggðu sér leiki í undanúrslitum á móti hinu geysisterka liðið Larvik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×