Handbolti

Geir með Magdeburg í úrslit

Anton Ingi Leifsson skrifar
vísir/getty
Magdeburg tryggði sér sæti í úrslitum þýska bikarsins í handbolta eftir sigur með minnsta mun á Füchse Berlin í undanúrslitunum í dag. Lokatölur 27-26.

Füchse Berlin var skrefi á undan í fyrri hálfleik og leiddi meðal annars 15-12 þegar flautað var til hálfleiks.

Í síðari hálfleik var spennan rosaleg. Magdeburg skreið fram úr á lokakaflanum og tryggði sér þar með sæti í úrslitunum, en lokatölur 27-26 eftir æsilegar lokamínútur.

Magdeburg mætir þar Flensburg, en Flensburg vann Rhein-Neckar Löwen í leik liðanna fyrr í dag.

Peter Nenadic skoraði mest fyrir Füchse Berlin eða níu talsins. Jure Natek var markahæstur hjá Magdeburg með fimm mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×