Handbolti

Þrjú mörk frá Guðjóni í enn einum sigri Barcelona

Anton Ingi Leifsson skrifar
Guðjón Valur í leik með Barcelona.
Guðjón Valur í leik með Barcelona. vísir/barcelona
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði þrjú mörk úr fimm skotum fyrir Barcelona sem vann Granollers 34-29 í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Barcelona var undir í hálfleik 18-15, en þeir hysjuðu upp um sig í síðari hálfleik. Þeir unnu að lokum fimm marka sigur eins og áður segir, 34-29.

Landsliðsfyrirliðinn skoraði þrjú mörk úr fimm skotum, en hann skoraði tvö þeirra úr hraðaupphlaupi og tvö þeirra úr horninu og eitt úr víti.

Þetta var 28. sigur Barcelona í deildinni í vetur, en þeir eru löngu orðnir spænskir meistarar. Þeir hafa ekki tapað leik í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×