Heyrnartæki sem hafa vakið heimsathygli 12. maí 2015 13:00 LiNX2 heyrnartækin frá ReSound skerpa talmál, draga úr umhverfisklið og deyfa vindgnauð.
Linx heyrnartækin frá danska heyrnartækjaframleiðandanum ReSound hafa vakið verðskuldaða eftirtekt á helstu fréttaveitum heims. „Heyrnartækin tengjast þráðlaust við snjallsíma og önnur snjalltæki. Það er hægt að stilla heyrnartækin með appi og opnast þannig nýir möguleikar fyrir heyrnarskerta. Hægt er að aðlaga heyrnartækin að þörfum hvers og eins. Það fer eftir heyrnarskerðingu og lífsstíl notandans hvaða möguleikar eru valdir. Sumir velja að nota appið til að stilla hljóðstyrk á meðan aðrir nota heyrnartækin sem handfrjálsan búnað við símann,“ segir Ellisif K. Björnsdóttir, heyrnarfræðingur hjá Heyrn í Kópavogi.Hún segir Íslendinga almennt vera frekar kærulausa með að vera í hávaða. „Það er einhver mýta í gangi með að ef fólki líkar við hljóð að þá geti þau ekki skemmt. Það er rangt. Hávaði skemmir heyrnina og ekki er hægt að finna hvenær hljóðstyrkur er orðinn það hár að hann sé farinn að skemma heyrn nema vera með hljóðstyrksmæli. Heyrnarskemmdir eru varanlegar og ekki er hægt að lækna þær.“ Heyrnarskerðing á ekki einungis við þá sem eldri eru. Ellisif segir að allir ættu að koma í heyrnargreiningu til að vita stöðuna hjá sér. „Nú hafa vísindamenn og hönnuðir ReSound bætt um betur með nýju LiNX2 heyrnartækjunum því með þeim heyrist bæði eðlilega og áreynslulaust. Meðal nýjunga í LiNX2 er að þau skerpa talmál, draga úr umhverfisklið og deyfa vindgnauð betur en áður hefur verið gert.“ Skynjaðu lifandi tilfinningu fyrir umhverfi og talmáli Ellisif segir fordóma og fáfræði gagnvart heyrnartækjum vera til staðar en segist ekki skilja af hverju. Heyrnartæki hjálpa fólki með að eiga samskipti við aðra og að taka þátt í samfélaginu. "Þetta eru bara hjálpartæki. Auk þess eru þau orðin mjög þróuð, orðin lítil og nett, með framúrskarandi hljóðgæði. Nýja (reikniverkið) virknin Binaural Directionality™ II með Spatial Sense™ styður eðlilega hæfileika heilans til að vinna úr hljóðum svo fólk heyrir mun auðveldar. ReSound LiNX2 eru nýjustu heyrnartækin í flokknum Smart Hearing. Með nýju Spatial Sense virkninni fæst eðlileg tilfinning fyrir því hvaðan hljóðið berst og hún hjálpar til við að mynda skýra hljóðmynd af umhverfinu. Í háværu hljóðumhverfi sér Binaural Directionality™ II um að fólk geti þrátt fyrir það skilið hvert orð í venjulegu samtali. Þegar allt kemur til alls þá auka heyrnartæki lífsgæði fólks sem farið er að heyra illa.“ Til að heyrnartækin nýtist sem best er mikilvægt að fá faglega heyrnargreiningu og ráðgjöf hjá heyrnarfræðingi sem aðstoðar við val á heyrnartækjunum. Gott er að fá heyrnartæki til prufu og fá að upplifa umskiptin sem verða þegar þau eru notuð. Allar nánari upplýsingar má finna á heyrn.is og á Facebook.
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Lækkandi markaðsverð hafi ekki skilað sér í lítranum Neytendur Fleiri fréttir Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Alvöru þægindi eftir átján holur Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Sjá meira