Handbolti

Guðjón Valur spænskur bikarmeistari

Guðjón Valur fagnar í leik með Barca.
Guðjón Valur fagnar í leik með Barca. vísir/getty
Barcelona fullkomnaði tímabilið sitt í dag með því að vinna spænsku bikarkeppnina.

Barcelona lenti í nokkru basli með Granollers í úrslitaleiknum en sleit sig frá þeim í lokin og vann sætan sigur, 27-26.

Barcelona er því spænskur meistari og bikarmeistari. Liðið tapaði ekki leik á Spáni. Svo vann liðið einnig Meistaradeildina. Liðið tók í heildina þátt í sjö mótum og vann þau öll. Ótrúlegt lið.

Guðjón Valur Sigurðsson fann sig ekki í dag og nýtti aðeins eitt skot af sjö í leiknum. Victor Tomas var markahæstur með sjö mörk en Jesper Nöddesbo og Raul Entrerrios skoruðu sex.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×