Handbolti

Karabatic væntanlega á leið til PSG

Karabatic var alinn besti leikmaður úrslitahelgarinnar í Meistaradeildinni og fagnar því hér.
Karabatic var alinn besti leikmaður úrslitahelgarinnar í Meistaradeildinni og fagnar því hér. vísir/getty
Það bendir flest til þess a Nikola Karabatic muni spila með PSG á næstu leiktíð.

Orðrómur þess efnis að Karabatic muni yfirgefa herbúðir Barcelona fyrir PSG hefur verið í loftinu lengi.

„Leyfið mér að njóta þess að fagna þessum titli. Við munum ræða um framtíðina síðar," sagði Karabatic eftir að Barcelona hafði unnið Meistaradeildina síðasta sunnudag.

Hann hefur síðar staðfest að hann sé með tilboð frá PSG og segir að hann muni spila með Barcelona eða PSG næsta vetur.

Bróðir hans, Luka, er á leið til PSG og svo er hermt að fyrrum þjálfari Kiel, Noka Serdarusic, sé að taka við liðinu.

Heimildir La Parisienne herma að þegar sé frágengið að Karabatic spili með PSG næsta vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×