Tíu KA-menn töpuðu 2-1 í Grindavík og eru sex stigum frá Pepsi-deildarsæti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júlí 2015 19:57 Jósef Kristinn Jósefsson lagði upp mark fyrir Grindavík í kvöld. Vísir/Andri Marinó
Grindavík hoppaði upp fyrir bæði Akureyrarliðin og alla leið upp í fjórða sæti 1. deildar karla í fótbolta eftir 2-1 sigur á KA í Grindavík í lokaleik 11. umferðarinnar í kvöld. Ásgeir Þór Ingólfsson skoraði fyrra mark Grindvíkinga fimmtán mínútum fyrir leikslok en Grindavíkurliðið var þá búið að vera manni fleiri í 36 mínútur. Óli Baldur Bjarnason skoraði annað markið í uppbótartíma áður en Elfar Árni Aðalsteinsson minnkaði muninn rétt fyrir lokaflautið. Tommy Nielsen og lærisveinar hans í Grindavík eru nú komnir með 20 stig og eru fjórum stigum á eftir Fjarðabyggð sem er í öðru sætinu. KA-menn hafa aðeins unnið einn af síðustu fjórum leikjum sínum í 1. deildinni og eru nú sex stigum frá sæti í Pepsi-deildinni. Það var búist við miklu af liðinu í sumar en liðið hefur aðallega sýnt sitt rétt andlit í Borgunarbikarnum þar sem liðið er komið alla leið í undanúrslit. KA-maðurinn Ívar Örn Árnason fékk réttilega rautt spjald fyrir tveggja fóta tæklingu á 39. mínútu leiksins en mark Ásgeirs Þórs Ingólfssonar kom þó ekki fyrr en á 75. mínútu leiksins. Óli Baldur Bjarnason skoraði annað mark Grindvíkinga á annarri mínútu í uppbótartíma leiksins en Elfar Árni Aðalsteinsson minnkaði síðan muninn í 2-1 á fjórðu mínútu í uppbótartíma. Það mark kom of seint og Grindvíkingar fögnuðu sigri. Tveir síðustu sigrarnir hjá Grindavíkurliðinu í 1. deildinni hafa nefnilega verið á móti Akureyrarliðunum Þór og KA sem eru fyrir vikið dottin niður fyrir Grindvíkinga í stigatöflunni þegar mótið er hálfnað. Upplýsingar um markaskorara í leiknum eru fengnar frá vefsíðunni fótbolti.net.
Íslenski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira