Innlent

Von á skúrum og svölu veðri fram yfir helgi

Birgir Olgeirsson skrifar
Það má búast við skúrum fram yfir helgi víða um land.
Það má búast við skúrum fram yfir helgi víða um land. Vísir/Arnþór
Það er fátt um fína drætti inni á vef Veðurstofu Íslands þegar horft er nokkra daga fram í tímann. Besta veðrið næstu daga verður annað kvöld á höfuðborgarsvæðinu, nánar tiltekið um klukkan 21 á þriðjudagskvöldi þegar spáir 13 stiga hita og heiðskíru veðri. Eftir það má búast við svölu veðri og skúrum um land allt, miðað við árstíma.

Í dag má búast við norðan- og norðaustanátt 5 – 13 metrum á sekúndu, en heldur hægari norðaustan til. Skýjað og rigning með köflum sunnan- og suðaustanlands en víða bjart vestan til. Úrkomulítið í kvöld en fer að rigna norðan og austan á morgun, annars bjart með köflum. Hiti víða 5 til 16 stig, hlýjast fyrir sunnan.

Á fimmtudag er búist við norðlægri eða breytilegri átt, 3 – 10 metrum á sekúndu. Bjartviðri um landið sunnan og vestanvert og líkur á síðdegisskúrum en skýjað og rigning með köflum annars staðar. Hiti 5 til 15 stig, svalast austan til.

Á föstudag, laugardag, sunnudag og mánudag:

Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og skúrir um allt land, síst þó norðvestan til. Hiti 6 – 14 stig, hlýjast syðst.

Þegar litið er á langtímaspá norsku veðurstofunnar þá verða Íslendingar einfaldlega að vona að „sumarið“ komi í ágúst. Þess ber þó að geta að langtímaspár eru ekki þær áreiðanlegustu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×