Sjö handteknir í tengslum við dauða flóttafólksins í Austurríki Atli Ísleifsson skrifar 28. ágúst 2015 09:12 Rannsóknin hefur leitt í ljós að 7,5 tonna bíllinn hafi lagt af stað frá Búdapest á miðvikudagsmorgun. Vísir/AFP
Sjö manns hafa verið handteknir í Ungverjalandi í tengslum við dauða þeirra sjötíu flóttamanna sem fundust látnir í vörubíl á hraðbraut í austurhluta Austurríkis í gær.Austurríska blaðið Krone greinir frá þessu, en yfirvöld eiga enn eftir staðfesta handtökurnar. Í fréttinni segir að talið sé að nokkur fjöldi smyglaranna sé að finna í Rúmeníu. Viktor Urban, forsætisráðherra Ungverjalands, greindi frá því í gær að bílstjórinn, sem talinn er að hafi ekið bílnum, sé Rúmeni, en utanríkisráðuneyti Rúmeníu hafnaði því í morgun. Rannsóknin hefur leitt í ljós að 7,5 tonna bíllinn hafi lagt af stað frá Búdapest á miðvikudagsmorgun. Klukkan átta á miðvikudagsmorgninum hafi bíllinn verið á landamærum Austurríkis og Ungverjalands og hafi svo haldið yfir landamærin aðfaranótt fimmtudagsins. Lögregla segir ekki algengt að svo stórir bílar séu notaðir fyrir smygl sem þessi og að vanalega sé notast við smærri bíla. Talið er að flóttafólkið hafi kafnað í bílnum.
Flóttamenn Tengdar fréttir Tugir flóttamanna köfnuðu Allt að fimmtíu lík flóttamanna fundust nærri Vínarborg í gær. Bifreiðin hafði verið yfirgefin í vegarkanti í frá því deginum áður. „Heimsbyggðin fylgist með okkur,“ segir Angela Merkel kanslari Þýskalands. 28. ágúst 2015 08:00 Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Sjá meira
Tugir flóttamanna köfnuðu Allt að fimmtíu lík flóttamanna fundust nærri Vínarborg í gær. Bifreiðin hafði verið yfirgefin í vegarkanti í frá því deginum áður. „Heimsbyggðin fylgist með okkur,“ segir Angela Merkel kanslari Þýskalands. 28. ágúst 2015 08:00