Innlent

Níu þingmenn hlýddu á hugvekju Siðmenntar um fulltrúalýðræði

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Sigurður Hólm Gunnarsson
Sigurður Hólm Gunnarsson
Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, hélt í dag hugvekju í kjölfar þess að setning Alþingis fór fram í dag. Hefð hefur skapast fyrir því að þeir alþingismenn sem vilja geti sótt þessa athöfn. Alls hlýddu níu þingmenn úr fjórum þingflokkum á hugvekjuna sem Nanna Hlín Halldórsdóttir, doktorsnemi við Háskóla Íslands, hélt.

Allur þingflokkur Pírata, ásamt þingmönnum frá Bjartri framtíð, Vinstri grænum og Samfylkingunni hlýddu á hugvekjuna. Frá því á árinu 2011 hefur athöfnin verið haldin eftir að þingmenn koma frá þingsetningu. Að sögn Bjarna Jónssonar, framkvæmdastjóra Siðmenntar, var því breytt vegna þess að þingmenn höfðu hug á því að geta mætt bæði í Dómkirkjuna og til Siðmenntar, en áður var hugvekjan haldin á sama tíma og þingmenn hlýddu á messu í Dómkirkjunni.

Nanna Hlín, sem er með mastersgráðu í heimspeki og gagnrýnum fræðum frá Kingston-háskóla í London og vinnur nú að doktorsverkefni sínu við Háskóla Íslands hélt hugvekjuna að þessu sinni og nefnist hún Að standa fyrir fólkið. Einbeitti Nanna sér einkum að fulltrúarlýðræði og spurði áleitna spurninga.

„Get ég yfirhöfuð talað fyrir hönd annarra? Í annarra manna nafni? Get ég nokkurn tímann fullkomlega skilið reynslu eða upplifanir annarra? Get ég kannski talað fyrir þá er standa mér næst – það fólk sem birtist öðrum á sama hátt og ég – er sett í sama félagslega flokkinn: Kona eða karl, svartur eða hvítur, gömul eða ung? Standa allir í raun jafnfætis í dag óháð þessum félagslegu flokkum?“

Hugvekjuna í heild sinni má lesa á vefsíðu Siðmenntar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×