Fegurðarsamkeppnir fyrir píkur sigga dögg skrifar 2. september 2015 11:00 Vísir/Getty
Ekki er öll vitleysan eins. Í sumar efndi kynlífstækjaframleiðandi til píkufegurðarsamkeppni. Keppnin fór fram á netinu og áttu píkur heims að taka mynd af sér og senda inn í samkeppnina með #autoblowvaginabeuatycontest skrifað einhver staðar á myndina. Margar voru mjög sniðugar í þessari merkingu og skrifuðu það á lítinn miða og límdu yfir rassinn á sér. Það hefði kannski átt að veita aukaverðlaun fyrir frumleika í staðsetningu miðans en svo virðist sem engum hafi dottið í hug að nota bara post-it sem er með líminu á. Kannski bara í næstu keppni. Markmiðið með þessari keppni var ekki fagna fjölbreytileika heldur að gefa kynlífstækjaframleiðanda tækifæri á að velja píku sem flestir karlar álitu fallegasta (nú eða girnilegasta) svo hann gæti prenta hana út í þrívídd og selt sem kynlífstæki.Vísir/GettyFyrrgreindur framleiðandi sagðist sjálfur kjósa píku með stórum börmum en hann var ekki viss hvort aðrir deildu hans smekk, sérstaklega í ljósi einleits útlits kynfæra í kynlífstækjabransanum (og reyndar oftar en ekki í mörgum klámmyndum). Afraksturinn má sjá hér. Ef þú smellir á hlekkinn þá sérðu píkur. Sumar eru á hvolfi, sumar eru með andliti, á sumum sést í rassinn og sumar eru skreyttar en allar eru þær hárlausar. Það var nefnilega skilyrði að vera hárlaus því annars gat prentarinn stíflast, segir aðstandandi keppninnar. Ef þig langar að rýna í niðurstöður þessarar keppni á ögn vísindalegri nótunum þá var tekin saman lýsandi tölfræði og má skoða hana og rýna í löndin sem tóku þátt og meðallengd barma, svo fátt eitt sé nefnt. Dæmi nú hver fyrir sig en líkt og í flestum fegurðarsamkeppnum var útlitið nokkuð einsleitt og byggt á ákveðinni markaðsforskrift.
Heilsa Tengdar fréttir Ímyndarherferð píkunnar Ég sá píkuna í nýju ljósi um daginn. Það var ekki svo að ég hefði spennt hana upp með goggi og stungið inn vasaljósi (þó vissulega sé það hugmynd fyrir áhugasama um leggöng). Ég sá hana í súkkulaðilíki. Í öllu sínu veldi sem smartan og girnilegan konfektmola. Við það að sjá hana svona tignarlega þá kviknaði hjá mér hugmynd. 11. október 2012 00:01 Píkuskrímslin Misjöfn viðbrögð unglinga við kynfræðslu. 11. október 2014 14:00 Píka eða budda, pjalla eða klobbi? Í opnu bréfi til bókaútgáfunnar Óðinsauga sem birtist á vefiritinu knuz.is er orðanotkun í barnabókum gagnrýnd. 23. október 2014 20:39 Ein píka, tvö leggöng? Hér er saga kvenna sem komust að því að þær væru með tvö leggöng og tvö leg! 15. október 2014 14:00 Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Sögulegt parhús í Hlíðunum Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið
Ímyndarherferð píkunnar Ég sá píkuna í nýju ljósi um daginn. Það var ekki svo að ég hefði spennt hana upp með goggi og stungið inn vasaljósi (þó vissulega sé það hugmynd fyrir áhugasama um leggöng). Ég sá hana í súkkulaðilíki. Í öllu sínu veldi sem smartan og girnilegan konfektmola. Við það að sjá hana svona tignarlega þá kviknaði hjá mér hugmynd. 11. október 2012 00:01
Píka eða budda, pjalla eða klobbi? Í opnu bréfi til bókaútgáfunnar Óðinsauga sem birtist á vefiritinu knuz.is er orðanotkun í barnabókum gagnrýnd. 23. október 2014 20:39
Ein píka, tvö leggöng? Hér er saga kvenna sem komust að því að þær væru með tvö leggöng og tvö leg! 15. október 2014 14:00