Handbolti

Frábær sigur Flensburg á stjörnuprýddu liði PSG

Anton Ingi Leifsson skrifar
Anders Eggert var magnaður í dag.
Anders Eggert var magnaður í dag. vísir/getty
SG Flensburg-Handewitt vann frábæran sjö marka sigur á PSG í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í handbolta í dag, 39-32.

Lítið var um varnarleik í leiknum, en lið Flensburg spilaði frábæran handbolta. Þeir leiddu í hálfleik 21-16.

Í síðari hálfleik héldu heimamenn uppteknum hætti, en PSG náði mest að minnka muninn í þrjú mörk snemma í síðari hálfleik. Nær komust þeir ekki og Flensburg sigldi öruggum sigri heim, 39-32.

Frábær sigur Flensburg, en Anders Eggert var magnaður hjá þeim og skoraði þrettán mörk. Næstur kom Holger Glandorf með níu stykki.

Hjá gestunum var það Mikkel Hansen sem skoraði níu mörk, en næstur kom Nikola Karabatic með sjö. Róbert Gunnarsson gerði þrjú mörk fyrir PSG, en hann klikkaði þó þremur dauðafærum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×