Handbolti

Rut skoraði tvö í fjórtán marka sigri

Rut Jónsdóttir í leik með íslenska landsliðinu.
Rut Jónsdóttir í leik með íslenska landsliðinu. vísir/valli
Rut Jónsdóttir skoraði tvö mörk í fjórtán marka sigri Randers á SønderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Randers hafði tögl og haldir á vellinum allt frá upphafi leiks, en staðan í hálfleik var til að mynda 19-7, Randers í vil.

Í síðari hálfleik héldu þær uppteknum hætti, en Rut skoraði tvö mörk úr fjórum skotum. Einnig gaf hún þrjár stoðsendingar og var rekin útaf einu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×